sunnudagur, 25. nóvember 2007

Vinnuaðstæður

Margir kvarta undan vinnunni sinni.

Fólk vælir yfir laununum sínum.

Maturinn í hádeginu er ekki nógu góður.

Skrifborðsstóllinn mætti vera betri.

En á meðan yfirmenn okkar neyða okkur ekki til að vera í einhverri FÁRÁNLEGRI múnderingu sem hefur engan annan tilgang en að niðurlægja okkur, þjónar allavega engum tilgangi sem öryggistæki sbr. öryggishjálma á vinnusvæðum, höfum við EKKI efni á neinu væli!

Þessar ungu dömur fá líklega ekkert af þessu. Efast um að stórar summur bíði þeirra í lok mánaðarins, enginn er skrifborðsstóllinn, bara einn kollur og hádegismaturinn samanstendur líklega af sykruðu sælgæti eða bakkelsi og gosi.

Svona er umhorfs á Íslandi í dag (í útlenskum leikfangaverslunum).

þriðjudagur, 20. nóvember 2007

Að sigra tunglið

Mig langar að taka þátt í að sigra tunglið.

Mig langar taka þátt í að smíða og forrita róbóta sem kemur til með að keyra á tunglinu.

Hefur einhver eitthvað við það að athuga?

Með hverjum?
Þessir koma sterklega til greina sem transport platform, en það yrði líklega að forma hóp sérstaklega um róbótann.

Takmarkið er að vinna X Prize verðlaunin, nánar tiltekið Google Lunar X Prize.

Þarna yrði ævilangur draumur að veruleika.