fimmtudagur, 11. október 2007

Aðgerðaleysi

Einhvernvegin finnst mér eins og það gerist ekkert voðalega mikið hjá mér í vinnunni, né reyndar heima.

Ég er búinn að vinna í sömu verkefnunum í vinnunni í marga mánuði og eru enganvegin að klárast.

Hinsvegar er ég búinn að mála stofuna og ganginn í íbúðinni! Sem er mjög gott. Þá er þetta líklega orðið meira en hálfnað.

Hef verið að stúdera launakerfi ÍSOR undanfarið þar sem ég er nú bæði trúnaðarmaður og sit í Samstarfsnefnd um stofnanasamning. Gaman að skoða (tölfræðilega) fylgni milli mismunandi þátta. Það á eiginlega við um öll gagnasett.

Fylgni er nefnilega mjög skemmtilegt fyrirbæri. Ákaflega margir ganga út frá því að fylgni milli mismunandi þátta sé skýr sönnun fyrir tengslum þeirra á milli og að af henni megi draga raunhæfar niðurstöður. Er fækkun sjóræningja raunveruleg ástæða hækkandi hitastigs á jörðinni? Maður skal aldrei einblína um of á gögnin, þó þau séu kannski ekki "ósönn".

Ég fékk nemanda í dag. Hann er frá einhverju afríkulandi, svartur eins og nóttin. Ég á að kenna honum að forrita í C. Það verður vonandi gaman. Hann var að ljúka námi frá Jarðhitaskóla háskóla Sameinuðu þjóðanna og þarf að komast af stað í forritun áður en hann fer aftur heim.

Otis var maðurinn

Otis Redding var maður mikils ballar, eða allavega bar tónlistin hans merki um það.

Flutningur Black Crowes á Hard to handle er eiginlega eins og píkuskrækir við hliðina á þeim gamla.

Ég legg til að við dönsum.