föstudagur, 14. desember 2007

Nú blæs hann!


Um klukkan 08:00 í morgun, í tilefni af veðri ákvað ég að hætta mér út á svalir heima hjá mér, en það er á 4ðu hæð í Fellsmúla 5 (efst á hæðinni hér fyrir ofan Grensásveginn) til þess að prófa vindhraðamælinn sem ég smíðaði í sumar, þrátt fyrir að allar rúður á íbúðinni bunguðu og svignuðu vegna vinds.

Smellti mynd af fyrirbærinu með símanum mínum, en þar sem ég þurfti að ríghalda mér til að fljúga ekki fram af svölunum var hún ekki góð.

Eftir 10-15 mínútur hætti ég að fá mælingar frá græjunni, kíkti út um gluggann og sá að vindskeiðarnar voru horfnar af stönginni sem þær snerust um!!

Skoðaði síðustu mælingar sem ég tækið fékk og hljóðuðu þær upp á að skeiðarnar voru innan við 0.5 millisekúndur að ferðast 20° úr hring (upplausnin á tækinu mínu er upp á 0.5 millisekúndur og sýndu mælingarnar því 0 millisekúndur). Hefði verið gaman að vera búinn að kvarða tækið vel og fá að vita hvað það eru margir sekúndumetrar.

Þannig fór um sjóferð þá!

2 ummæli:

Ég sjálf sagði...

Hvað ertu að þvælast út á svölum í brjáluðu veðri, krakki!!!
Mamma.

Nafnlaus sagði...

Sammála seinasta ræðumanni.