Einhvernvegin finnst mér eins og það gerist ekkert voðalega mikið hjá mér í vinnunni, né reyndar heima.
Ég er búinn að vinna í sömu verkefnunum í vinnunni í marga mánuði og eru enganvegin að klárast.
Hinsvegar er ég búinn að mála stofuna og ganginn í íbúðinni! Sem er mjög gott. Þá er þetta líklega orðið meira en hálfnað.
Hef verið að stúdera launakerfi ÍSOR undanfarið þar sem ég er nú bæði trúnaðarmaður og sit í Samstarfsnefnd um stofnanasamning. Gaman að skoða (tölfræðilega) fylgni milli mismunandi þátta. Það á eiginlega við um öll gagnasett.
Fylgni er nefnilega mjög skemmtilegt fyrirbæri. Ákaflega margir ganga út frá því að fylgni milli mismunandi þátta sé skýr sönnun fyrir tengslum þeirra á milli og að af henni megi draga raunhæfar niðurstöður. Er fækkun sjóræningja raunveruleg ástæða hækkandi hitastigs á jörðinni? Maður skal aldrei einblína um of á gögnin, þó þau séu kannski ekki "ósönn".
Ég fékk nemanda í dag. Hann er frá einhverju afríkulandi, svartur eins og nóttin. Ég á að kenna honum að forrita í C. Það verður vonandi gaman. Hann var að ljúka námi frá Jarðhitaskóla háskóla Sameinuðu þjóðanna og þarf að komast af stað í forritun áður en hann fer aftur heim.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

4 ummæli:
dude, congradz með bloggið! ég skal vera tíður gestur ef þú verður duglegur að blogga!
Kv. Arna
Yay! Interblag! Og flott að þú sért byrjaður að fíla tölfræði!
Sæll púngurinn minn.
Gaman að sjá að þú ert kominn aftur með blogg.
Þetta auðveldar mér að stalka þig.
Heill sér þér Kæfusafi
Bæjó.
Hafði einhver fyrir því að reikna út r? ....
Skrifa ummæli